Hjartaáfall.

Það munaði minnstu að ég þyrfti að lýsa yfir ótímabæru andláti mínu í gærkveldi.

Fjárhúsið í Stykkishólmi, leikur í körfubolta kostaði mig nærri lífið.

En ég slapp fyrir horn annars væri ég að skrifa að handan núna. 

Hjartað í mér var á mesta hraða, 500 slög á mínútu eða svo. Blóðþrýstingurinn heldur í hærra lagi, ég sem hélt í einfeldni minni að ekki væri eins hættulegt að horfa eins og að taka þátt.  Mér skjöplaðist eins og svo oft áður. Jæja en hvað með það drengirnir í Snæfell unnu og er ég kát með það.

Áfram Snæfell.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband