ÓN'YTUR þjóðfélagsþegn.

Ég viðurkenni það hér og nú.  Handónýt. 

Kona sem stutt á eftir í sextugsafmælið og hefur ekkert annað að gera eða enga döngun í að gera eitthvað viturleg, annað en að hanga í tölvu daglangt er ekki metin til margra fiska hvað þá geita.

Búin að skruna yfir helstu bloggfærslur á síðum netsins, skanna það sem hefur náð athygli minni, skamma kettina og rygsuguróbotinn.  Rífast í sjálfri mér fyrir leti og ómennsku. Hálfnuð við að gera allt og ekki neitt.

Ef margir eru á sömu nótum og ég þá er ekki að undra að kreppa sé í nánd. 

Eðli málsins samkvæmt ætti ég að vera á vinnumarkaðnum og vinna fyrir salti í grautinn minn og þotum fyrir ráðamenn þjóðarinnar.

Fer í að búa til fleiri bloggsíður til að hella úr minni andans ruslafötu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband