Af sóðaskap.

Af öllu er ég mest upptekin af sjálfri mér.  Eigin hugsunum þankagangi og lífi.

Mér finnst ég skemmtilegri.

Hálfblind af skorti opnaði ég ískápinn til að fá mér mjólk í kaffið.  Náði í fernuna - notaði mjólkina - horfði dágóða stund inn í ískápinn.

Hum og ha.  Ryk? Ryk í ískápnum?

Ég pússaði gleraugun, reyndi eins og ég gat að hvessa augun á sultukrúsir sem biðu prúðar eftir að verða notaðar.

Nema hvað - það voru lokin sem voru rykug.

Æjæææ.  Ég lokaði skápnum í hvelli.

Settist með kaffið mitt, sit enn og velti fyrir mér hver býr hér eiginlega.

Enn í vangaveltum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband