Duttu af þér fingurnir?

Duttu af þér fingurnir?  Spurði mig kona á förnum vegi ekki fyrir svo margt löngu.  Ha!!!!!!!!!! sagði ég heldur hvumsa - hvað áttu við?

Skotraði samt augunum niður þar sem fingurnir á mér eru venjulega, í fljótu bragði virtust þeir vera allir.

Þú ert hætt að nenna að skrifa á bloggið, ( Staðhæfing ) þá er alveg eins gott að hætta sagði virðuleg miðaldra konan og snéri upp á sig.

Ég hugsaði mig um stund - hugsihugsihugsihugs - ég verð dónaleg - ég svara með skæting og dónaskap - ég breyti um umræðuefni!!!!!!!!!!!!

 

Það er erfitt, þreytandi og snúið að hugsa svo ég brosti mínu blíðasta og sagði stundarhátt - Æji takk fyrir að lesa það sem til fellur úr höfði mér og niður á vefritlu moggans - ég bæti um betur strax í kvöld, er ekki annars allt gott af þér og þínum?

Eftir smá stund af spjalli um hluti sem eru mikilvægir í lífinu héldum við í sitthvora áttina.

 

Njótum dagsins, lífsins og hvers annars.

Það er gott að vera til.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband