Með sorg í hjarta ...........

Og létt í lund fagna ég verklokum.   

Ég er glöð með mig.
Custom Smiley 

Les í afmælisdagabókinni sem er hér í nándinni:

“Hver er sínum hnútum kunnugastur„ 

Ég á reyndar ekki afmæli í dag nema að ég er deginum eldri en í gær, það er vel.

Teygji ég út vinstri höndina og gríp um það sem hendi er næst þá er það bók.  Daily word for women, 365 days of love, inspiration, and guidance.  Ég ætla að opna bókina og sjá hvar ég lendi.

Dagur 195: “As I let go and place everything in GOD's care, I begin to see the bigger picture.„

Þessu trúi ég.

Teygji ég út hægri höndina og gríp fyrstu bókina sem þar er:

Love you forever, bók sem ég fékk senda, þegar frumburður minn ákvað að taka sitt eigið líf, frá stóru systur minni í Ameríku.

Stefið í bókinni er :

 I'll love you forever,

I´ll like you for always,

As long I'm living

my baby you´ll be.

Falleg bók.

Taki ég mig til og rétti aðra eða báðar hendur beint fram verður skjárinn kámugur.  URR! No ég þarf að þrífa hann sjálf!!!!!!!!!

 

Mitt vandamál og vandræðagangur er fólgin í ákvarðanatöku.  Málið er einfalt Hafdís mín hvíslar tvíburasystir mín ( sú vonda) í eyrað á mér: Taktu ákvörðun og málið er leyst!!!!

Illu er best slegið á frest stendur örugglega einhversstaðar.

Ekki gera neitt í dag sem þú getur geymt til morguns sagði sérvitringur nokkur við mig dag einn fyrir margt löngu.

Ef ég tek ákvörðun núna sem er yfirmáta skynsamlegt, jafnvel gáfulegt.  Og það er smart að halda eigin gáfum fram, þá fylgir böggull skammrifi!Whistling

Hvað gerist ef engin eru vandamálin og vandræðagangurinn í lífi mínu?

Jahérnahéroghananú, sletti í góm, dossa og slæ mér á lær.

Kíki hér með undir feldinn minn góða og hugsa málið.

Mér leggst alltaf eitthvað til en feldskúrið eflir andann.

  

Alltaf kát.
Custom Smiley 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband