19.4.2008 | 08:36
Af sóðaskap.
Af öllu er ég mest upptekin af sjálfri mér. Eigin hugsunum þankagangi og lífi.
Mér finnst ég skemmtilegri.
Hálfblind af skorti opnaði ég ískápinn til að fá mér mjólk í kaffið. Náði í fernuna - notaði mjólkina - horfði dágóða stund inn í ískápinn.
Hum og ha. Ryk? Ryk í ískápnum?
Ég pússaði gleraugun, reyndi eins og ég gat að hvessa augun á sultukrúsir sem biðu prúðar eftir að verða notaðar.
Nema hvað - það voru lokin sem voru rykug.
Æjæææ. Ég lokaði skápnum í hvelli.
Settist með kaffið mitt, sit enn og velti fyrir mér hver býr hér eiginlega.
Enn í vangaveltum.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.