Stjörnuspá

Ofboðslega þykja mér stjörnuspár frábærar og birti hér spá vatnsberans fyrir daginn í dag:

 Litlar lexíur hafa áhrif á persónuleika þinn. Þú ert ennþá þú, bara vitrari og ákveðnari. Í kvöld er fullkominn tími til að hitta fólkið sem þú hefur heyrt svo mikið um.” 

Núna get ég velt fyrir mér ýmsu: 

Lexía er væntanlega eitthvað sem tengist orðræðu og ég á að læra af, litlar tákna líklega ekki mörg orð og afar spennandi að hlusta eftir í deginum hvað hefur áhrif á persónuleika minn. 

Þú ert ennþá þú, bara vitrari og ákveðnari  

 Ég er glöð með að fá áfram að vera ég – það er nógu flókið – hvað þá einhver annar.  Vitur og ákveðin snjallt. 

Kvöldið er frátekið fyrir manninn sem ég elska, vona að enginn skipti sér af okkur, fjölskylda og vinir eru það fólk sem ég elska að heyra mikið um og í. 

Njótum dagsins, lífsins og hvers annars.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband