Sprotafyrirtæki!

Hum og da.  Hvað í veröldinni eiga þeir að gera sem búnir eru að tapa atvinnunni og aleigunni? Ekki virðast fréttir dagsins uppörvandi.

Við erum með fullt af þingmönnum, ráðherrum, aðstoðarmönnum, nefndum og svo framvegis sem dunda við að hreiðra vel um sig á afar góðum launum.  Jafnvel þó gengið verði til kosninga og öllum skipt út eru þessir menn vel settir á eftirlaunum.  Við hin sitjum ekki við sama borð.  Svo hver og einn verður að bjarga sér!

Er ekki verið að hvetja landsmenn til að stofna sprotafyrirtæki?

Atvinnuskapandi hvernig sem á málið er litið, ja hérna hér ég dossa nú og slæ mér á lær.

 Íslenskar hænur

Njótum dagsins lífsins og hvers ann


mbl.is Varar við aukinni kannabisræktun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira kærleikskitl.

Ódýrar lausnir

Ég innrétta hús mitt, ekki er það létt
því allt skal þar vera bæði fallegt og nett.
Í stofunni við gluggann er pláss fyrir frið
og fallegar kveðjur ég set þar við hlið.

Í miðju sérhvers herbergis ég hengi upp orð,
hamingjukenndir ég legg á öll borð,
í gluggana hengi ég hláturmildi efst,
hljómlitin ómar er tækifæri gefst.

Hugulsemi og kærleik í herbergin ég set
hjálpsemi ég mála á allt sem ég get
þögnin fótnett sem þekking mér veitir
þungamiðju hugans af lítillæti skreytir.

En best af öllu er að ekkert kostar þetta
þú aðeins þarft í huga þér ímyndanir flétta
og að loknu verki síðan sestu niður
þá sannarleg streymir um þig ástúð og friður.

Höfundur Unnur Sólrún úr bókinn Kærleikskitl - óbærileg lífshamingja.

Njótum dagsins lífsins og hvers annars.

Kærleikskitl - óbærileg lífshamingja.

Alltaf gerist eitthvað fallegt og nýtt, hver dagur dýrðin ein.  Ég veit núna hver orti ljóðið sem ég birti hér á vefritlunni minni. Ég veit meira í dag en ég vissi í gær sem er gott.

Kæra Hafdís.  Ég er glöð að sjá ljóðið mitt hér á síðunni og þakka fyrir það.  En mér þætti vænt um ef nafnið mitt fylgdi mér.  Ljóðið er úr nýrri ljóðabók, Kærleikskitl - óbærileg lífshamingja.

Fallegar ljóðakveðjur

Unnur Sólrún

Mér þykir leitt að hafa ekki haft vitneskju um höfund fyrr, en veit það núna sem gleður mig í dagsins önn.

Endurbirti ljóðið og vona að ég geti eignast bókina fyrr en síðar.

Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður
vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður
ég vel að kúr´um stund og staðnæmast við það
hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að.

Ég ákveð því að velja að vandamálin fá
vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá
tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti
ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti.

Og eftir litla stund ég vel að far´ á fætur
faðma þennan morgun og allar hans rætur
hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt
kex smyr með osti í blöðin svo ég lít. 

Að endingu ég segi við þig sem þetta lest
þett´ er góður dagur, hafðu það sem best
ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni
ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni.

Höfundur Unnur Sólrún.

Njótum dagsins lífsins og hvers annars. 

 


Hugsunarháttur - orðaval.

Ég hlusta á stundum.

Legg eyrun við hlustir þegar útvarpið er á.

Kreppa-erfiðir tímar-í þessu hræðilega ástandi-í ljósi þess sem gerst hefur.......... blablabla.

Ég trúi því að ég sé það sem ég hugsa.  Ég veit að ekki er hægt að snúa við og breyta sögðum orðum eða gerðum, um leið og andartakinu er sleppt fer það inn í liðna tíð.

Ég vel að hugsa um verkefni ekki vandamál. Ég vil hugsa um þennan fína dag sem ég er vöknuð inn í, ég vel að vera í mínu fínasta pússi, innan sem utan.

Ég vel að hugsa um tímabundið ástand ekki kreppu. Öll él birtir upp um síðir.

Mér finnst betra að hugsa og tala um aðhald og fara betur með fremur en sparnað.

 

Þetta er góður dagur, njótum hans lífsins og hvers annars.


Gefðu aldrei neitt upp á bátinn, kraftaverkin gerast daglega.

Vertu umburðarlyndur gangvart sjálfum þér og öðrum

Njóttu fólks, en ekki nota það

Vertu hugrakkur þótt þú sért það ekki, enginn ser muninn

Lærðu að hlusta tækifærin láta oft lítið fyrir sér fara

 

 ______________________

 

Ég vakna þennan morgun og vel að hann sé góður
vel að hann sé yndislegur, myrkur og hljóður
ég vel að kúr´um stund og staðnæmast við það
hve stórkostlegt sé lífið ef fátt amar að.

Ég ákveð því að velja að vandamálin fá
vistuð séu hjá mér til þess eins að ljá
tilverunni ennþá fleiri tilbrigði og fleti
ég tek þeim opnum örmum svo nýtt mér þau ég geti.

Og eftir litla stund ég vel að far´ á fætur
faðma þennan morgun og allar hans rætur
hita mér gott kaffi af kærleik þess ég nýt
kex smyr með osti í blöðin svo ég lít. 

Að endingu ég segi við þig sem þetta lest
þett´ er góður dagur, hafðu það sem best
ég óska þess að hugsanir fallegar þig finni
ég faðmlag þér sendi og kveð þig að sinni.

 

 Njótum dagsins lífsins og hvers annars.

 


Vinur minn.

Falleg blóm

Þegar vinur minn er vansæll leita ég hann uppi, þegar hann er sæll bíð ég eftir honum.

 

Njótum dagsins lífsins og hvers annars.


Mannleg hamingja.

Dagurinn í dag:

Ef þú sættir þig við takmörk mannlegs vits og lífs, muntu öðlast mannlega hamingju.

Njótu dagsins lífsins og hvers annars.


Draumurinn.

 

“Mig dreymir um veröld þar sem fólk er virt vegna þess hversu vel þeim kemur saman.......fremur en hversu sterka varnarmúra það hefur byggt í kringum sig.„

Úr bókinni My miracle is You, Clint Weyland.

Njótum dagsins lífsins og hvers annars.


Faðmlög.

Faðmlög:

Spara orku, lækka hitareikninginn

Eru auðveld í flutningi

Gera góða daga betri

Gera óbæilega daga bærilega

Vekja samkennd

Hafa jákvæð áhrif löngu eftir að faðmlagi lýkur

 

Njótum dagsins lífsins og hvers annars.


Faðmlög.

Að faðmast:

Eykur vellíðan

Eyðir einmannakennd

Yfirvinnur ótta

Opnar fyrir innbyrgðar tilfinningar

Eykur sjálfstraust

 

Faðmlög:

Slaka á spennu

Vinna bug á svefnleysi

Halda handleggs-og axlarvöðvum í þjálfun

Auka líkamlega vellíðan

 

Njótum dagsins lífsins og hvers annars.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband