Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Klemmubrauð og mjólkurgrautur

Það er farið vel með mig hér norðan heiða, ég fékk í gær bæði mjólkurgraut og klemmubrauð.

Ég fór inneftir að Halldósstöðum sem er í framsveitinni, eftir vistina þar fór ég úteftir til Akureyrar.

Ég fór vestur í Varmahlíð.

Sótti brauðið sem var sunnanmegin við smjörið.

Og mér finnst þetta skemmtilegt.  Einstakt. Ótrúlegt. Ég er þvílíkt lánsöm kona.  Enn að læra enn að upplifa enn að bæta tærri snilld í reynslubankann minn.

Ég er hinsvegar fyrst og fremst búin að kynnast góðu fólki, ég er glöð og þakklát fyrir það.

Ég stefni á að njóta dagsins og hafa hann góðan.

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband