30.5.2008 | 18:01
Arfasöngur ...........
Við dömurnar Soffía, Eldey Hrefna og ég þveittumst sveittar um upp-og niðursveitir Borgarfjarðar í leit að arfa - arfa já haugarfa eða ekki. Verðið eins og best verður á kosið en ekkert fannst. Ég man nú ekki til að skortur hafi verið á arfa. Hum og ha, ekki hefur rignt nægilega undanfarið segja fróðir menn.
Ætlum aftur í næstu viku. Það er vel. Ekki var nú gærdagurinn notaður í það sem til stóð en við bjuggum til handáburð úr býflugnavaxi, kakósmjöri, sólblómaolíu og ilmkjarnaolíum, himnesk eðalafurð. ið var reyndar dálítið metta af ilm en hvað er það milli vina.
Svo tók ég mig saman í andlitinu ( + + + + + )í morgun og bjó til unaðshandáburð úr blómavatni, býflugnavaxi, sólblómaolíu og ilmkjarnaolíum
nú eru mínar mjúkar eins og á ungabarni.
Öllu gamni fylgir alvara húsið mitt lítur út eins og einhver hafi varpað sprengju inn ég er ekki mjög glöð heldur ekki hrygg bara svona
þyrfti eina svona sem týndi ofan í sig sjálf. Seinna .
Gösli elskar mig eins og ég er fór kátur í vinnuna ekkert vesen hér á bæ .
Njótum dagsins lífsins og hvers annars.
Athugasemdir
Kem prufu til þín við tækifæri. Það sem mér finnst best við að búa til sitthvað sjálf er að ég er örugg með innihaldið. Engin aukaefni, reyni að hafa allt efni lífrænt vottað. Vanda sem sé valið í innihaldið.
Nota ilmkjarnaolíur víða, bæði heima og heiman.
Unaður einn. Njóttu helgarinnar stelpa mín.
Hafdís Lilja Pétursdóttir, 30.5.2008 kl. 20:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.